Ólafur Arason minn hljómur

23Sep/062

Átt þú svona tölvu

Dell tölva
Kannski ekki rétti tíminn til að kaupa Dell, IBM, HP/Compact eða Apple tölvur.

Filed under: Óskilgreint 2 Comments
22Sep/0611

Mozilla öryggi

Ég gleymdi auðvitað að commenta á bloggin hennar systur minnar varðandi að geta ekki límt í bloggið sitt úr Mozilla. Hérna er lýsing hvernig á að gera það.

Þetta er annars til að stoppa að það sé hægt að lesa lykilorð og annað mikilvægt sem maður stundum afritar.

Filed under: Óskilgreint 11 Comments
22Sep/061

Skilgreiningar á orðum

Kennari nafnorð:

1. Persóna sem spyr spurninga sem þeir vita nú þegar svarið á.

Filed under: Óskilgreint 1 Comment
22Sep/061

No comprende?

Tungumál er fyndin hlutur, þó að fólk sé að tala sama tungumál á blaði er það alls ekki það sama og að gera það í raun.

Orð hafa enga merkingu, jafnvel þó að þau reyni að hafa merkingu eins og alnæmi, tölva, hársápa og svo framvegis; Þar að leiðandi eru þau miklu verri.

Orð hafa yfirfærða þekkingu, þannig að þú verður að vita eitthvað til að skilja orðið. Þau geta líka hafið merkingu sem er stærri en þekking sem hægt er nálast, eins og London, safn, tónlist; hvað er í raun og veru verið að tala um þegar maður notar þau orð.

Skólar keppast við að fræða okkur um hins ýmsu orð og setningafræði; í þeim tilgangi að nálgast hugsanir annars fólks innan sama fags og að gera okkur þáttakendur í því fagi.

Samt á maður í erfiðleikum með að skýra: afhverju vont sé vont.

Tökum dæmi:

Maður1: Treystirðu hermönnum til að bæta ástandið í miðausturlöndum?

Maður2: Ég tel að ofbeldi leiði af sér ofbeldi.

Maður1: En þá eru hryðjuverkamennirnir búnir að vinna.

Maður2: Ég tel að bandaríkin séu að græða jafn mikið og hryðjuverkamennirnir.

Maður1: En bandaríkin eru bara að tryggja rétt okkar til að lifa og rétt eigna okkar.

Maður2: En er fólk þá ekki til í Miðausturlöndum, eða réttar sagt er fólk sem deyr ekki fyrir framan myndavél ekki til. Þannig að allt er heilagra sem kemur frá vesturlöndum, okkar trú, okkar byggingar, okkar fólk, okkar menning. Þú veist hvað það er svo aftur í steinöld að ganga í svörtum kufli.

Maður1: Afhverju eigum við að réttlæta tilverurétt okkar?

Maður2: En afhverju eigum við ekki að virða tilverurétt annars fólks í heiminum?

Maður1: Er það ekki það sem við erum að gera með að færa lýðræði til heimsins?

Þetta er ekta dæmi um fólk sem er að tala tvö mismunandi tungumál. Þetta gerist svo oft að það mjög furðulegt að engin sé að reyna að bæta þetta; það er kannski útaf því að vísindamenn innan mismunandi greina tala líka mismunandi tungumál og stjórnmálamenn slá öllum við.

Það er kannski það sem gerir stjórnmál skemmtileg.

Ps Ég sit á Cultura í Alþjóðahúsinu

Filed under: Óskilgreint 1 Comment
22Sep/060

Hryðjuverk

Ég verð greinilega að fylgjast betur með fréttum. Hérna er þýðing á bloggi:

Bandaríkin við Pakistan: "Verið viðbúin að vera sprengd í loft upp. Verið viðbúinn að fara aftur til steinaldar."

hryðjuverk nafnorð:

1. nota ofbeldi og hótanir til að ógna eða þvinga, sérstaklega í pólitískum tilgangi.

Uppruni

Við sjáum hvernig fólk bregst við top listi Amazon er með Noam Chomsky í fyrsta sæti og í öðru sæti er bók sem heitir the Decline of Truth ... og fjallar um hvað hefur gerst síðan 11 sept.

Filed under: Óskilgreint No Comments
21Sep/061

Stærðfræði snillingar

Hérna er frábær linkur á stærðfræði snillinga.

Sérstaklega fyrir mömmu útaf því að hún er að taka svo mikla stærðfræði núna.

Filed under: Óskilgreint 1 Comment
20Sep/062

Strætó

Ég tók strætó í dag og í gær útaf því að ég lokaði bílinn minn inní bílastæðahúsi. Þetta er í annað sinn sem ég geri þetta ég verð að hafa einhverja viðvörun á mig til að muna að þeir loka kl 19:00. Ég fékk ágæta dembu á mig. Ég er núna búinn að forða bílnum.

Filed under: Óskilgreint 2 Comments
19Sep/061

Könnun

Ég er orðin kúl, eins og hinir krakkanir, og er kominn með könnun; en hún er einmitt um útlitið á heimasíðunni minni.

Filed under: Óskilgreint 1 Comment
18Sep/060

“MMS Skilaboð”

060918152607.jpg
Ég hef greinilega tekid mikid af skýjamyndum

Filed under: Óskilgreint No Comments
16Sep/061

“MMS Skilaboð”

060916134834.jpg 

Nokkrar myndir úr fjölskylduveislunni III

 

Filed under: Óskilgreint 1 Comment