Við lifum ekki abstract
Mér hættir stundum til að pæla of mikið í abstract hlutum og sé alveg fullkomlega tengslin við raunveruleikan. Ég geri ekki mjög mikin greinamun þar á milli. En það truflar mjög marga þegar maður tjáir sig þannig, en ég nota það mikið við að sjá kjarnan í hlutum og aðstæðum. Ég á það líka til að athuga hve vel fólk fylgist með, með því að missa útúr mér eitthvað í abstrackt formi. Ég hef líka réttlætt það að fylgjast ekki með fréttum útaf því að þær tjá sig bara um hluti sem eru að gerast en ekki bein greining. Ég fylgist hins vegar með fréttaskýringum. Ég er að byrja að átta mig á því að fólk þarf tengingar; ég hef kannski alltaf vitað það útaf því að það er miklu skemmtilegara að fylgjast með hlutum þar sem maður þekkir fólk. En það er munur á því að vita og gera. Þannig að ég mun nú vera með á blogginu mínu, raunverulegt líf, abstract af því og tengingu við raunveruleikan af abstractinu. Bara til þess að flækja málið.
Venjulegt líf
Þetta eru myndir af Tehran í Íran sem þú sérð ekki á hverjum degi

