“MMS Skilaboð”
“MMS Skilaboð”
“MMS Skilaboð”
“MMS Skilaboð”
“MMS Skilaboð”
Nýjustu fréttir frá Ungverjalandi
Ég er búinn að fá skorið úr því, kortið mitt er ónýtt. Samkvæmt þeim er það íslenska bankanum að kenna; samt geta fá íslensku bankarnir ekki tækifæri á að bjargað því. Ég er þannig búinn að færa peninginn yfir á Jóhönnu. Við förum til Búdapest á morgun, það verdur mjög spennandi.
Ungverjaland
Ég kom til ungverjalands í gær. Það er frekar óvenjulegt hér miðað við það sem ég hef farið áður. Í dag át hraðbanki kortið mitt, ég skildi ekkert í þessu þangað til að ég hringdi í bankan heima og komst að því að ég er með tvö kort á reikninginum mínu. Þannig að þetta er með annað pin númer en hitt kortið mitt ( sem ég var ný búinn að eyðileggja útaf því að ég hélt að ég væri kominn með nýtt kort ). Svona er lífið, við getum kannski bjargað því á föstudagin. Ég gleymdi líka rafmagnsnúrunni í tölvuna, þannig að ég sit á netkaffi og skrifa þetta. Við erum að fara á morgun til Búdapest þannig að það er alveg möguleiki að finna snúru þar.
Ég ætla að reyna að senda myndir á bloggið mitt úr símanum.
Annars skemmti ég mér mjög vel hér, þetta er aðarlega fyndið.
Tónlist á netinu
Tónlist hefur þann eiginleika að vera mjög móttækileg fyrir öllum nýjungum. Strax og kassettur komu var byrjað að færa efni yfir á það útaf því að það var þægilegra en an bera plötuspilar með sér. Þegar geisladiskar komu vöru þeir strax notaðir til þess að búa til mix diska með tónlist sem þú vildir. En listamenn hafa aldrei verið undanskildir greiðslum frá þessu útaf því að hluti af kostnaði þessara miðla renna nú til þeirra.
Fyrr en núna, listamenn eru að tapa stórum upphæðum útaf því að plötufyrirtæki virða ekki internetið sem nýjan dreifimiðil sem þarf að leggja skatt á internetgjöld til þess að vega upp á móti þessum getu þessa miðils til þess að dreifa tónlist, sem hann virðist vera eins og hannaður fyrir. Í staðinn fyrir eðlilega skattlagningu á interneti og mp3 spilurum vilja þeir ráða hverjir geti notað hann, hvar þeir nota hann og hvernig. Og kallar viðskiptavini sína þjófa og sjóræningja vegna þess að þeir eru að reyna að beina flæðinu til sín.
Það er svipað og að fulltrúar landsbankans stæðu fyrir utan íslandsbanka og myndu kalla fólk sem færi þar inn þjófa og þeir væru að ræna af þeim peningum.
Ég vil nefnilega gera vel við listamönnum og öllum þeim sem hafa með tónlist að gera. Hins vegar er ég í þeirri aðstöðu að ég get ekki notað tónlist.is, ég nota Ubuntu stýrikerfið, og jafnvel þar sem ég get nálgast það er sú þjónustu að skipta sér alltof mikið af mér. Þeir eru verri en Baugur og olíufélögin samt eru samkeppnisyfirvöld ekki að skipta sér að.
Þetta þýðir hins vegar ekki að það sé einfallt að kalla mig þjóf, ég kaupi nefnilega bara safndiska til þess að ná í lög sem ég fíla og færi þau yfir á tölvuna til þess að hlusta á og þar get ég fært það yfir á iPod.
Það er til mikið betri leið.
- Hún er að leggja gjöld á internetkostnað og mp3 spilara.
- Leyf þjónustuveitendum eins og siminn.is vodafone.is mbl.is tonlist.is að veita ókeypis aðgang að mp3 tónlist með því skilyrði að þeir haldi lista um vinsældir og filtera út erlendar ip tölur og íslenska proxy þjóna sem leyfa erlendum aðilum að tengjast.
- allir græða
Stúdenta mótmæli
Það er undirskrifar söfnun í gangi til þess að undirstrika mikilvægi menntunar sem hefur aðeins gleymst á síðustu árum. Hérna er linkurinn